Alþjóðleg matseld
Hollur hádegisverður, Veitingar & Takeaway.

Staðir okkar Dalvegur 30 & Katrinatun 4

Borða á staðnum

Komdu á staðinn og kitlaðu bragðlaukana með þínum uppáhalds rétti þann daginn eða prófaðu eitthvað nýtt sem gæti komið þér skemmtilega á óvart.

Vinsamlegast athugið! Í ljósi þess að við leggjum áherslu á ferskleika hráefnis, þá geta komið upp breytingar á matseðli.

Dalvegur 30
Dalvegur 30, Reykjavík, Ísland
Mon-Fri: 11:00 - 13:30
Katrínartún 4
Katrínartún 4, Reykjavík, Ísland
Mon-Fri: 11:00 - 13:30

Hádegismatur fyrir fyrirtæki

Þú ert alltaf velkomin/nn til okkar í ferskan og hollan hádegismat frá Ambrosial Kitchen. Við erum hér til að færa þér hádegisverð með alþjóðllegum blæ. Allt frá ljúffengum vegan réttum til kjöt- eða fiskirétta, gómsætum salötum og súpum sem næra líkama og sál. Hver og einn getur valið sína máltíð með einum smelli og við sjáum um að koma ferskleikanum beint að dyrum til þín. Taktu þátt í vikulegri áskrift okkar og gerðu hádegismatinn að einum af hápunkti dagsins.

img
Viðskiptavinir okkar
img

Þarf þú veitingar fyrir sérstakt tækifæri á skrifstofunni eða heima?

Láttu okkur sjá um veitingarnar fyrir næsta viðburð. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af veitinga valkostum og getum sinnt öllum matarvenjum og tegundum hópa. Við bjóðum einnig upp á veitingar á okkar stað í Dalvegur 30.

Kynntu þér - Glenn Moyle

Stofnandi og yfir kokkur

Matreiðslumeistarinn Glenn Moyle er stofnandi Ambrosial Kitchen. Hann hefur verið starfandi kokkur víðsvegar um heiminn í yfir 30 ár. Glenn yfirgaf Nýja Sjáland 21 árs gamall til að spila vatnspóló í Hollandi, í framhaldi af því ferðaðist hann um heiminn og vann sem kokkur á mismunandi veitingastöðum. M.a. krám í London sem voru reglulega heimsóttar af prins William og prins Harry. Kastölum í Skotlandi og bistro stöðum á Grikklandseyjum svo lengi mætti telja.

img